September 11, 2008
Uncategorized
31215 Comments
Ég hef notast við snilldar scriptu til að senda hóp sms á vodafone.is. Nú breyttu vodafone menn síðunni sinni og scriptan hætti að virka þannig að ég tók það upp hjá sjálfum mér að editera hana aðeins og fá virknina aftur
Upprunalega scriptan kom héðan og kann ég þessum snillingi miklar þakkir fyrir, og vona að mér sé fyrirgefið að fikta aðeins í þessu.
Til að þetta virki þá hægrismellirðu á linkinn hér fyrir neða og velur að adda hlekk í favorites. Því næst ferðu inn á www.vodafone.is og opnar svo favorites hlekkinn. Þá geturðu sett inn fjöldann allan af símanúmerum aðskildum með kommu og smellt á nýja hnappinn sem birtist undir textaboxinu
Vodafone Hóp SMS
May 8, 2008
Uncategorized
2 Comments
Byrjaði daginn eldsnemma (05.30), tók mig til og hjólaði í Bootcamp á Suðurlandsbrautinni. Þar var tekið vel á því í klukkutíma. Eftir það hjólaði ég sem leið lá í vinnuna í Urðarhvari í Kópavogi.
Eftir vinnu var svo hjólað í Sporthúsið og tekið vel á því í fótbolta í rúman klukkutíma. Þegar því var lokið var svo hjólað aftur heim í Mosó.
Hjóla lengd: ca. 41 km.
Kaloríur brenndar: 4.400
Mamma var svo góð við mig og keypti böglabera og svoan saddle bags á hjólið á spottprís í Europris… þannig að ég þurfi ekki að vera með þessa óþægilegu íþróttatösku á bakinu.
Ágætis byrjun á átakinu 
May 6, 2008
íþróttir
No Comments
Þar sem ég hef greinilega ekki um neitt markvert að blogga þá breytist bloggið nú í æfingadagbók.
Nú hefst nefninlega gríðarlega mikill undirbúningur fyrir hálfmaraþon sem maður stefnir á að hlaupa 23. ágúst. Markmiðið er að ná því undir 2 tímum og geta líka staðið nokkurnvegin uppréttur þegar ég kem yfir marklínuna.
Ég reyni að hlaupa 2-3sinnum í viku til að byrja með auk þess að hjóla í vinnuna þegar ég get. Svo eru auðvitað líka Bootcamp æfingar 3 í viku líka.
Allavega þá verður ekkert skemmtilegt að lesa hérna næstu mánuðina nema æfingapælingar 
February 7, 2008
Uncategorized
12 Comments
Ég rakst á blogg á moggablogginu undir yfirskriftinni “Bloggað í 10 ár” og fór þá að velta því fyrir mér hversu lengi ég hafi nú verið að þessu bloggeríi. Og viti menn það eru komin allavega 7 ár sem maður hefur verið að gaspra hitt og þetta mis gáfulegt út á netið… Fyrsta blogg síðan mín er reyndar ekki virk ennþá en sú sem kom önnur í röðinni lifir enn góðu lífi á nemendavef Háskólans í Reykjavík (http://nemendur.ru.is/thormundurh/nord). Þetta er fyrsta síðan sem ég blogga sem “tölvunörd” og því hefur það góða nafn verið við lýð í allmörg ár.
Þegar maður vildi svo breyta aðeins til þá var um að gera að prófa blog.central.is sem var jú upphaflega gert af snillingum úr HR, það blogg er ennþá uppi líka (http://blog.central.is/tolvunord).
En ég er jú nýjungagjarn, þannig að þegar moggabloggið byrjaði þá skundaði ég glaður í bragði þangað… ( http://tolvunord.blog.is ).
Þegar nýjabrumið var svo farið af moggablogginu þá varð ég að prófa enn eina nýjungina á bloggar.is (http://tolvunord.bloggar.is)… það var reyndar mjög skammvinnt og ég snér aftur á moggabloggið eftir þá reynslu.
Nú er ég svo að nota WordPress og hýsi þá á mínu léni (http://www.tolvunord.is) þar sem þú ert núna staddur að lesa þessar línur. Ég stend samt enn fast á því að HR bloggið mitt sé alltaf best, þar var ég með marga notendur og marga flokka þar sem hægt var að dæma golfvelli, kvikmyndir og bækur, svo var meira að segja hægt að kommenta á kvikmyndagagnrýninga… spurning um að nálgast grunnkóðann minn og byggja eitthvað skemmtilegt ofan á hann
… ætli það gangi nokkuð í heimi sem er orðinn obsessed af ajax og einhverju .NET 2.0 dótaríi…
January 15, 2008
Annað
2534 Comments
Já nú reynir maður enn og aftur að blogga eitthvað. Spurning um að hafa þetta blogg um eitthvað af viti, ekki bara eitthvað rugl um ekki neitt. Allavega þá er ég hættur að nota moggablogg og nota frekar þetta frábæra WordPress forrit, hrikalega flott og auðvelt í uppsetningu og notkun.
Þannig endilega fylgjast með hvort mér tekst að segja eitthvað af viti á næstunni 