Bloggedí blogg

11:12 am Uncategorized

Ég rakst á blogg á moggablogginu undir yfirskriftinni “Bloggað í 10 ár” og fór þá að velta því fyrir mér hversu lengi ég hafi nú verið að þessu bloggeríi.  Og viti menn það eru komin allavega 7 ár sem maður hefur verið að gaspra hitt og þetta mis gáfulegt út á netið… Fyrsta blogg síðan mín er reyndar ekki virk ennþá en sú sem kom önnur í röðinni lifir enn góðu lífi á nemendavef Háskólans í Reykjavík (http://nemendur.ru.is/thormundurh/nord).  Þetta er fyrsta síðan sem ég blogga sem “tölvunörd” og því hefur það góða nafn verið við lýð í allmörg ár.

Þegar maður vildi svo breyta aðeins til þá var um að gera að prófa blog.central.is sem var jú upphaflega gert af snillingum úr HR, það blogg er ennþá uppi líka (http://blog.central.is/tolvunord).

En ég er jú nýjungagjarn, þannig að þegar moggabloggið byrjaði þá skundaði ég glaður í bragði þangað… ( http://tolvunord.blog.is ).

Þegar nýjabrumið var svo farið af moggablogginu þá varð ég að prófa enn eina nýjungina á bloggar.is (http://tolvunord.bloggar.is)… það var reyndar mjög skammvinnt og ég snér aftur á moggabloggið eftir þá reynslu.

Nú er ég svo að nota WordPress og hýsi þá á mínu léni (http://www.tolvunord.is) þar sem þú ert núna staddur að lesa þessar línur.  Ég stend samt enn fast á því að HR bloggið mitt sé alltaf best, þar var ég með marga notendur og marga flokka þar sem hægt var að dæma golfvelli, kvikmyndir og bækur, svo var meira að segja hægt að kommenta á kvikmyndagagnrýninga… spurning um að nálgast grunnkóðann minn og byggja eitthvað skemmtilegt ofan á hann :) … ætli það gangi nokkuð í heimi sem er orðinn obsessed af ajax og einhverju .NET 2.0 dótaríi…

12 Responses
  1. Freysi :

    Date: February 14, 2008 @ 7:19 pm

    þú ert svo mikill nörd kall haha :D

  2. Þóra :

    Date: February 26, 2008 @ 5:37 pm

    Alveg klárlega algjör snillingur ;)

  3. Björgvin :

    Date: March 3, 2008 @ 4:42 pm

    Mig þyrstir í að vita afhverju þú stoppaðir stutt á bloggar.is og hvort og þá hvað þér hafi fundist mega gera betur þar :)

  4. eggertegg :

    Date: March 4, 2008 @ 12:00 pm

    Ert þú maðurinn sem skiptir oftar um bloggsíður en hann bloggar?

    ;)

  5. GoogleBot :

    Date: November 11, 2008 @ 10:58 am

    DAESH ONOTOLE V PRAVITELI VSELENNOI!

  6. YahooBot :

    Date: November 11, 2008 @ 5:24 pm

    Nice site, thanks for information!

  7. HairyMan :

    Date: November 11, 2008 @ 11:10 pm

    Not bad… Not bad.

  8. Timepieces :

    Date: May 7, 2010 @ 8:54 am

    All men delusion, but not equally. Those who day-dream before cimmerian dark in the dusty recesses of their minds, wake in the heyday to become aware of that it was vanity: but the dreamers of the hour are menacing men, for they may deception on their dreams with unblocked eyes, to cause them possible.

  9. Genuine Watches :

    Date: May 8, 2010 @ 8:32 am

    Environs an exemplar is not the sheer means of influencing another, it is the solitary means.

  10. concord watch :

    Date: May 11, 2010 @ 12:23 pm

    Splendidly done is sick than comfortably said.

  11. seiko sportura :

    Date: May 12, 2010 @ 12:19 am

    Splendidly done is well-advised b wealthier than extravagantly said.

  12. stuhrling :

    Date: May 12, 2010 @ 4:33 am

    Well done is well-advised b wealthier than extravagantly said.

Leave a Comment

Your comment

You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <code> <em> <i> <strike> <strong>

Please note: Comment moderation is enabled and may delay your comment. There is no need to resubmit your comment.