07.05.2008 Dagur 1
May 8, 2008 6:04 am UncategorizedByrjaði daginn eldsnemma (05.30), tók mig til og hjólaði í Bootcamp á Suðurlandsbrautinni. Þar var tekið vel á því í klukkutíma. Eftir það hjólaði ég sem leið lá í vinnuna í Urðarhvari í Kópavogi.
Eftir vinnu var svo hjólað í Sporthúsið og tekið vel á því í fótbolta í rúman klukkutíma. Þegar því var lokið var svo hjólað aftur heim í Mosó.
Hjóla lengd: ca. 41 km.
Kaloríur brenndar: 4.400
Mamma var svo góð við mig og keypti böglabera og svoan saddle bags á hjólið á spottprís í Europris… þannig að ég þurfi ekki að vera með þessa óþægilegu íþróttatösku á bakinu.
Ágætis byrjun á átakinu ![]()

Þóra :
Date: July 16, 2008 @ 3:43 pm
Vá ertu að grínast eða… held í alvöru talað að ég viti ekki um duglegri mann en þig!! maður er bara kominn með hörku sammara hérna :S
hehe haltu áfram að vera svona duglegur og já… HLAKKA til að fá þig til mín eftir nokkra daga
Luv Þóra sys
Þóra :
Date: July 16, 2008 @ 3:45 pm
Ahahahahaha… soldið lengi að taka eftir dagsetningunni ;P
Soldið gömul færsla… en það gerir ekkert til, veit þú ert ennþá jafn duglegur
Hei já… Rússíbanaferðir… ahahahahaha!! Hlakka svoooo mikið til